föstudagur, janúar 27, 2006

Bónus?

Myndirðu fara á deit með Jóhannesi í Bónus?
Við Rakel veltum þessari spurningu fyrir okkur óhóflega lengi og misstum okkur alveg í pælingunum þannig að mig verkjaði í magann eftir átök gærdagsins í ræktinni!! :p
Búin að vera svo dugleg að læra að ég beilaði á tímanum hjá Aldísi í body combat... sé eiginlega eftir því en ég var komin í lestrargírinn og maður verður víst að nýta það vel!!
Erum á leið í Idol party til Hafnýjar vinkonu hennar Rakelar, náum svo í Krissu og kíkjum kannski við í HR partýinu en svo ætlum við bara að fara heim og hafa það huggulegt ;)
Salóme - komin í gettóið!!

Engin ummæli: