miðvikudagur, janúar 25, 2006

sugabeib

Er ekki tilvalið að lífga aðeins upp á skammdegið með nýrri og ferskri bloggsíðu?! Ég held það!!

Hef kannski ekkert svo ofboðslega mikið að segja akkurat í augnablikinu...
nema kannski það að ég mun búa heima hjá Rakel skvísu næstu tvær vikurnar... þannig að tvær heitustu skutlurnar sameinast undir einu þaki!! Man... hvernig verður það svo ef að hinar gellurnar kíkja á okkur... ?? ;)

Í dag var Alþjóðadagur í HR og við Telma vorum með stutta kynningu á okkar starfi. Ég varð svo spennt fyrir hönd þeirra sem eru að hugsa um að fara út í skiptinám... alveg tapaði mér í gleðinni! Enda er þetta upplifun for a lifetime!! Brings back good memories.. væri vel til í að vera stödd í Barcelona núna... röltandi milli búða í góða veðrinu eða sötra sangríu!!

En núna eru það bækurnar sem öskra á mig og ég veit það að ég þarf að fara að drattast til að lesa... próf í næstu viku og allt að gerast!!
Þetta er allt að koma.. ég er að byrja að mæta aftur í ræktina og vá hvað það er æðislegt!! Tímanum framundan verður eytt þar og í lestur... sorry guys ;)

Ætla að skella mér í ljós...

Engin ummæli: