sunnudagur, mars 30, 2008

Was it all that easy?


Er komin með hlaupaæði!! Fór í gær til Kidda og náði mér í hlaupaskó og jakka... maður má ekki klikka á outfittinu! ;) Nefndi einmitt við hann að ég ætlaði að keppa á bikarmótinu í haust... held hann sé game í spons... og ég svaka sátt við það enda er Reebok klárlega flottasta íþróttamerkið í dag!! :)

Þetta er svo dýrt dæmi að maður þarf að fara að spá aðeins í þessu... einhverjar ábendingar eða einhver sem býður sig fram í að sjá um þetta fyrir mig hehe... jóhanna.. þú ert svo mikill plöggari!!! ;)

Á föstudagskvöldið var reunion hjá HR liðinu! Kíkti bara rétt aðeins en það var æðislega gaman að hitta krakkana aftur... þó það sé varla ár liðið frá útskrift voru þarna nokkrir búnir að setja upp hringa, einhverjar ófrískar... aðrir í íbúðakaupum... bara allt að gerast!!

Ég prófaði svo golf í Básum í gær... var alveg að ná þessu undir lokin... ætla að prófa aftur fljótlega!! ;)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Run, baby sister

ég mætti í Bása kl 17:00 og þú varst ekki þar. Endaði í félagskap með tveimur heldri mönnum sem fóru að gera hosur sína grænar fyrir mér. Kíktum svo í dinner Holtið og enduðum í Bingó í Vinabæ.... geggjað kvöld

Hvernig var þitt????

Saló sagði...

Hunang...

Heyri að kvöldið þitt hafi verið gott... mitt var það líka... ;)