mánudagur, ágúst 11, 2008

Let the game begin..

Geðveikin er byrjuð...

Ég er búin að hrista af mér þjóðhátíðarslenið og komin í gang aftur... ekki seinna vænna heldur því nú fer allt á fullt... ekkert grill og hvítt um hverja helgi neitt...
Það tók reyndar aðeins lengri tíma að komast í gang en það hefði átt að gera því ég tók upp á því að detoxa eftir eyjar og hef því nánast bara lifað á grænmeti og ávöxtum síðustu vikuna.. (sé augnabrúnina lyftast á þér Bjarney...)

Við erum nokkrar skvísur sem höfum tekið okkur saman og ætlum að taka þátt í þrekmeistaranum núna í nóvember.. við erum með brjálað team! það verður ágætis upphitun fyrir fitness :)

Æfingar byrjaðar af fullu aftur... skreið hérna heim seinnipartinn eftir æfingu með Nancy... ég verð að sippa með strákana aftur í haust svo ég þarf að fara að koma mér í svaðalegt sippuform á næstu tveim vikum svo maður geti tekið þá almennilega í gegn... gekk nú bara bærilega áðan!! Væri reyndar mjög mikið til í að eignast eins og eitt almennilegt alvöru Buddy Lee band svo ég geti farið að reyna við þrefalt hopp... það fer á óskalistann! Fer náttla að nálgast afmælið mitt... ;)

Svo eru smá breytingar í gangi... ég er aðeins að "minnka" vinnuna mína hjá Emporu og taka að mér meira hjá Sporthúsinu... bæði kennslu og svo sölu og markaðsmál fyrir öll námskeiðin sem eru í boði! Spennandi tímar framundan og svo til að toppa þetta þá byrjar skólinn líka núna 1.sept... :)

Ég er líka að flytja aftur heim í hreiðrið tímabundið... Svalan mín er að koma aftur til Rvk og vill endilega fá íbúðina sína aftur ;)

Hugsa að þetta sé annars orðið ágætt þetta updeit... þarf að halda áfram að vinna... það er brjálað að gera á öllum vígstöðvum!! Ætla svo að taka nýja bók með mér í rúmið.. "The New Rules of Marketing & PR"

Er ekki við hæfi að enda þetta á ágætis kvóti í Malcom Gladwell marketing guru...

"There can be as much value in the blink of an eye as in months of rational analysis" ;)

Eintóm gleði..

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Líst vel á ykkur stelpurnar... verðið með hörku lið :)

Saló sagði...

Jeee... við æfum amk eins og brjálæðingar!! :p

Nafnlaus sagði...

No comment bara ;o)

Saló sagði...

Bjarney... reynum að hittast um helgina :) Við eigum auðvitað sunnudagana þó ég hafi beilað síðast... geri það ekki í bráð.. ;)