laugardagur, júní 14, 2008

hope - belief - agape

Ég leysti af og kenndi body pump tíma - eða öllu heldur mína útgáfu af body pump í morgun uppi í Sporthúsi! Það var bara skemmtileg tilbreyting... ég er orðin alveg æst að fá að vera með þrekhring á svipuðum tíma... held það gæti verið hörkupúl... ég er nefnilega eins og þeir hörðustu (hehehe)... finnst ekki taka því að fara á æfingu nema svitna vel ;) - það er kannski ástæðan fyrir því að það er aldrei flautað á mig eins og sumar vinkonur mínar sem taka prufutíma í Sporthúsinu... ég fíla bara einum of vel að vera sveitt í mínum eigin heimi í ræktinni ... hehe... mjög sexy!!

Og talandi um að svitna vel á æfingu... við Bjarney tókum saman æfingu í Laugum í gær og hún stakk upp á því að við tækjum eina crossfit æfingu sem mér leist alveg svakalega vel á - það eru svo skemmtilegar æfingar í þessu prógrammi!!
Við tókum 800m spretti - 50 mjóbakæfingar og 50 sit ups, 3 sinnum í röð á tíma. Ég reyndar gleymdi alveg að við værum að taka tímann en það breytti ekki öllu... vorum rennsveittar og másanadi og sko engan veginn á því að fara að hætta strax... tókum nokkrar æfingar í viðbót og fórum svo á Nings þar sem við gátum kjaftað og tekið smá updeit... ;)

Er annars búin að vera frekar löt við að fara á æfingu síðustu daga... alveg orkulaus og búin að reyna að bæta það upp með overdoze af sykri sem virðist bara virka á þvervegin reyndar hehe... en ætla að bæta úr því í næstu viku... fór og keypti mér nokkrar íþróttaflíkur uppi í intersport eftir æfinguna í morgun... sem minnir mig á að ég þarf að fara að komast upp í Reebok umboð...

Ég er að hugsa um að setja saman smá hlaupahóp og fara að hlaupa svona 1x til 2x í viku í sumar... hverjir vilja vera með?

The mind is everything. What you think you become.

The secret of health for both mind and body is not to mourn for the past, worry about the future, or anticipate troubles, but to live in the present moment wisely and earnestly.

Ambition is like love, impatient both of delays and rivals.

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

He is able who thinks he is able.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já æfingin í gær var ógó skemmtileg! Hefði átt að draga þig á asnaeyrunum með á crossfit æfinguna kl.8 í morgun,það var afar hressandi. Er að elska þetta prógram sko :oD

Nafnlaus sagði...

ég skal hlaupa með þér:D í alvuru ég er að deyja hérna..

Saló sagði...

Já nú fer ég að troða mér með á crossfit æfingar... ég er alveg að sjá það!! ;)

Kata mér líst vel á þig... :) Byrjum að hlaupa í næstu viku :p

Einhverjir fleiri með??

Unknown sagði...

Ertu að segja að ég vilji ekki svitna sko... unga dama... ég er ekkert bara uppá punt sko... ég hélt að það væri á hreinu þó að maður sé í pínu ræktarlægð hérna ... en já koma sér aftur í gang.. það er að fara að gerast =O*