fimmtudagur, júlí 24, 2008

Lífið er yndislegt...

Vikan er búin að líða svakalega hratt... mikið að gera á öllum vígstöðvum!

Jump Fit er að fara af stað aftur og æfingar byrjaðar uppi í Sporthúsi svo ég fer fljótlega að verða aftur eitt af húsgögnunum þar! ;)

Ég er líka á kennaranámskeiði hjá Valdísi því ég ætla að taka að mér að kenna fleiri námskeið en Jump Fittið... er að læra að kenna á palla þessa dagana... læra að telja og brjóta upp rútínur... svaka stuð.. er með diska frá Valdísi í spilaranum á fullu teljandi taktinn... langar að læra að mixa tónlist og hækka beatið á lögum sem ég fíla.. svo ég geti notað þau í kennslunni... óska hér með eftir einhverjum snillingi til að kenna mér það!

Annars er ég bara búin að vera nokkuð dugleg að æfa í vikunni... yfirleitt er ég að fara tvisvar á dag og alveg að klára þriðju viku af fjórum á þessu prógrammi! Hljóp í dag 7,5 km með Rúrý og Lilju... erum búnar að koma upp föstum hlaupatíma út ágúst amk ef einhverjir vilja vera með... :)

Finn alveg hvað ég er orðin svakalega þreytt á kvöldin þegar ég leggst á koddann...

...en ég læt það ekkert stoppa mig frekar en fyrri daginn... tek sunnudagana í hvíld og ætla að skella mér á þjóðhátíð í fyrsta skipti á ævinni... og reyndar eyja yfir höfuð! :) Ég hugsa að ég verði líka með Jump Fit sýningu á báðum pöllum :) alveg að standa mig í markaðssetningunni!! ;)
Búin að vera að hlusta á þjóðkunn þjóðhátíðarlög og ég er ekki frá því að það sé bara kominn dáldill fiðringur í mig...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

oohhh væri sko alveg til í þjóðhátíð :) þetta er algjört æði. Búin að fara tvisvar og ætla sko aftur ;) meira að segja gleymdi mér í smá tíma um daginn og var byrjuð að plana ferðina, leit svo niður á bumbuna mína og "úps já alveg rétt, ekki kannski alveg tíminn núna hehe".
Góða skemmtun :)

Nafnlaus sagði...

Þú átt eftir að skemmta þér svo vel í eyjum!!!! ..krossum fingur og vonum að veðrið verði gott, það er fyrir öllu :) knús

Saló sagði...

Hehehe... takk fyrir það, ég er orðin svaka spennt!!

Ójá vonum að veðrið verði súper... það væri bara til að toppa þetta hehe :p

Nafnlaus sagði...

ég geri það sem ég vil

Sella sagði...

Úfff fáránlega mikil öfund hérna megin. Hef farið 6 sinnum á Þjóðhátíð og finnst óhugsandi að vera ekki að fara í eitt mesta fjör fjöranna. Góða skemmtun elskan mín ;o)

Knús frá Köben