miðvikudagur, apríl 16, 2008

Classic Fusion

Ekki nóg með að ég sé á leiðinni til Mílanó eftir nokkrar vikur heldur gerði ég mér lítið fyrir og pantaði mér ferð til New York í lok ágúst... það verður næs að stelpast aðeins þar... versla, fara fancy út að borða, kíkja á næturlífið og skoða sig um... einmitt rúmlega ár síðan ég var þarna seinast!! :)

Síðustu dagar hafa aldeilis verið viðburðaríkir... ég hef fengið bæði sorgarfréttir og gleðifréttir... varla náð að átta mig almennilega á hlutunum!

Ein besta vinkona mín er ófrísk... sú fyrsta úr þessum vinkvennahópi... svo við hinar erum trylltar eftir því, skipuleggjandi babyshower og hvaðeina... ;) Það er mikill misskilningur að þó maður sé hoppandi hamingjusamur fyrir hönd vina sinna að maður sé tilbúinn sjálfur... ég er svo mikil stelpa ennþá að ég sé þetta ekki gerast á næstunni.... ég held að Fannar vinur minn hafi áhyggjur af mér því hann sagði mér að finna mér góðan strák og vinda mér í málin... hehe.. ég læt mér duga að passa fyrir ykkur elskurnar... enda sýnist mér að ég muni eiga fullt í fangi með að sinna litlum frændum og frænkum sem eru á leiðinni!! ;)

Er að massa ræktina... loksins komin almennilega af stað.. Strákarnir mínir eru geðveikt flottir sipparar!! Mig logsvíður í brjóstvöðvana eftir allar armbeygjurnar í dag... og ég vona að þeim sé illt líka!! hehe...

Svona verða þeir eftir herbúðirnar mínar...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hellu sæta...
ooooo næs new york og milano..vó þú átt eftir að eignast 2 nýja fataskápi á þessu ári;) hehehe
en ja strákarnir þinir verða sko pottþétt svona eftir námskeiðið;) hehe..
kveðja þóra sigríður jumpfitari í kanada;) heheh

Saló sagði...

Hæ sæta sæta!! Hvernig er úti?Veistu hvað ég var að hugsa til þín í gær... :)

Kemuru eitthvað heim í sumar??

Nafnlaus sagði...

það er fint hérna..nema soltið kalt nún um helgina...en það var 20 stiga hiti síðustu helgi og nuna -1 gráða:S hehe...
nei kem ekkert heim í sumar:( en hver veit hvað mar verður lengi hérna..hehe..kannski bara kemur mar bara heim í haust eða næsta vetur:P hehhe..

fyndið var líka að hugsa til þin og fann bloggið;) hehehe..great minds think a like;)