föstudagur, apríl 25, 2008

What we think - we become!!

Undirbúningur fyrir Berlínarmaraþonið er on... það verða teknir 15 km í fyrramálið áður en við förum að kenna Jump Fit! Er í óðaönn að updeita playlistann á ipodinum mínum sem er eitthvað að gefa sig... sem minnir mig á að ég verð að redda mér nýjum ipod í sumar!!

Sem þýðir að ég verð bara róleg í kvöld... eða þið vitið - ekkert svona brjálæðislega æst eins og venjulega... hehe..

Svo er víst búið að skrá mig á línuskautanámskeið... frábært.. ekki veitir af.. ég viðurkenni fúslega að ég þurfi á því að halda... kann ekki að stoppa mig... þó ég hafi einu sinni æft listdans á skautum... eða ok, fór á nokkrar æfingar í skautahöllinni... ætli ég hafi ekki hætt eða bara rekin hahaha - af því að ég gat ekki lært að stoppa mig... skautaði örugglega bara alltaf á vegginn til að stoppa... kæmi mér ekki á óvart... ég er svo mikill klaufi...

Farin að hlakka svakalega til að hitta skvísurnar annað kvöld... ætla að djamma almennilega og brenna dansgólfið því svo verð ég víst að taka smá pásu... amk í hvítvíninu því ég þarf að byggja upp þol til að hlaupa 42 km í september!! Mér skilst að ég þurfi að fara 35 km 3 vikum fyrir hlaupið og svo að gíra mig niður aftur... já já þetta verður lítið mál...

Er í partýfíling.. - fyrir þá sem hafa áhuga.. heitar umræður um boltastráka inni á www.dyrunn.bloggar.is ;)

Þetta lag minnir mig svo á Katý - litlu yndislegu vinkonu mína og okkur tvær að tapa okkur á dansgólfinu á Rex einhvern tíman á HR tímabilinu... awww... goood old times!! hehehehe...

Góða helgi..

Kv. Saló partýdýr!!

2 ummæli:

Unknown sagði...

Elsku yndið mitt!! En fabulous!!! Það var svo gaman á Rex "í den" og að syngja með og dansa við David!!! Unforgettable haha ;) Veistu, þó að þetta lag sér búið að vera eitt af mínum uppáhalds í ... hm...meira en 7 ár :o þá hafði ég aldrei séð myndbandið fyrr en núna :D En fyndið!!! P.s. - ætlaru ekki örygglega að setja David á playlistann?? :p er ennþá með það á mínum ;) Luv luv

Saló sagði...

Æ það var svo gaman hjá okkur!! Með dj-Rebba á kantinum... alveg æstar í að heyra öll gus gus -lögin... hahaha!! en þetta ákveðna var einhvern veginn alltaf uppáhalds ;) og minnir mig alltaf svo á þig!!!

David fer klárlega á playlistann!! Ásamt nýjum headcandy lögum... hehe...