mánudagur, apríl 07, 2008

Sumarið er tíminn...

Þessi mynd var tekin af okkur Jump Fit skvísunum á Bikarmótinu í Fitness 2007




Ég fæ alveg gæsahúð að hugsa til þess að það séu ekki nema um sjö mánuðir í næsta Bikarmót!! Mikið viðbjóðslega hlakka ég til....


Ég vaknaði eitthvað hálf ómöguleg.. .komst ekkert í ræktina í dag... missti af tíma í lagfæringu líka en sem betur fer gat ég unnið ágætlega heima! Alveg glataðir svona dagar..


Ég er að segja ykkur það að það leiðinlegasta sem ég veit er að vera fastur heima hjá sér veikur!! Ég get svo svarið það að það slær því út að skipta um sængurver og að sitja í flugvél!! Er með massífa hálsbólgu... ég veit að ég þarf að láta taka úr mér kirtlana... en ég eiginlega meika það ekki... ekkert frekar en ég þori ekki að láta draga úr mér endajaxlana... mér hefur aldrei verið vel við sjúkrahúsferðir, sprautur eða blóð...


Fékk geðveikan sumarfíling á laugardaginn... fór út að hlaupa um morguninn með Valdísi. Ég bætti mig... hljóp 8,5km á uþb 40 mín! ánægð með það!! Veit að Bjarney var að fjárfesta í nýjum hlaupaskóm svo að nú förum við að setja alvöruna í þetta... maður verður að geta sprangað um á bikiníinu í sumar án þess að roðna...
Hitti Brynju og Guggu í lunch og um kvöldið kom Jóhanna svo með mér að hitta Elvu vinkonu sem býr úti í Róm. Við hittumst í drykk og ég endaði á djamminu... ekki orð um það meir... nema kannski að ég hitti Thelmu skvís á tjúttinu sem hafði komið óvænt heim frá Köben... sagðist vera með einn Dana handa mér... ég var ekkert smá happy að sjá hana!!


Mhmm... hlakka til sumarsins... ;)

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bíddu á ekkert að segja frá djamminu....

kommon stelpa....

e-r skandall????

Saló sagði...

Ég skemmti mér vel... kom víða við, fékk dj-inn á vegó meðal annars til að lofa að kenna mér á græjurnar...(ef ég myndi láta þær í friði meðan hann væri að spila!!) mig langar nebbla svo að vera dj - veit um nokkur lög sem ég myndi spila... hehehe...

Nafnlaus sagði...

Já og ekki orð um það meir =O) svaka stuð takk fyrir gott djamm skvís =O)

Sella sagði...

Sagði Telma þér bara frá einum dana - elskan mín, komdu bara að heimsækja okkur og við skulum kynna þér fyrir nokkrum ;o)

Láttu þér batna - love from CPH

Saló sagði...

Yo - takk sömuleiðis... gerum þetta aftur við tækifæri ;) hehe...

Sella - Takk elska! Ég er alltaf á leiðinni, you know that... ég finn á mér að það fer að styttast í það ;)
xox, Saló