mánudagur, apríl 21, 2008

Live a little ...

Áhrifagjörn - tékk
Hvatvís - tékk
Ævintýraglöð - tékk
Áhættusækin - tékk

Ég var að láta Valdísi plata mig til að taka þátt í Berlínarmaraþoninu í lok september... það eru ekki nema litlir 42 km!!

Ef maður er ekki létt geggjaður þá veit ég ekki hvað... við erum að tala um að ég er að fara að hlaupa í svona 4-5 tíma samfleytt!! En fyrst ég gat hlaupið hálfmaraþonið í fyrra algjörlega á þrjóskunni einni þá get ég hlaupið heilt maraþon í ár!! Eins og Buddha segir "What we think, we become"... :)

Þannig að... brjálæðislega miklar hlaupaæfingar framundan... Við vinkonur gerðum okkur lítið fyrir og tókum 10,5 km skokk seinnipartinn, sem myndi rétt svo kallast upphitun í maraþoninu! Ég brunaði svo upp í Sporthús og beint í danstíma til Gauja.... ég má ekki missa af einum tíma! - og ég er dauð í fótunum eftir því...

14 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Salóme þú veist ekki hvað ég er þakklát fyrir að eiga vinkonu sem er klikkaðri en ég ... met það óendanlega mikið að eiga þig sem vinkonu .. híhí... klikkhaus.. reyndu nú að hlaupa ekki úr þér allt vit =O*

Saló sagði...

Hahahaha.... eigum við að ræða þetta eitthvað... mér þykir líka óendanlega vænt um þig mín kæra hehe.. ;)

Bikarinn er klárlega í mínum höndum... nú hef ég toppað allt...

Eeen... sjáum hvort hann endist hjá mér alla vikuna... ;)

Ji hvað er gott að hafa þig með mér í gleðinni...

Nafnlaus sagði...

Duglegi litli klikkhaus

Nafnlaus sagði...

jiiidúdda mía..en gaman samt:) engin smá orka sem þarf að hafa í þetta..dúlegi strumpur:)

jú kan dú it við jor as in tú it:)

Saló sagði...

Helll yeah... hehe.. :)

Nafnlaus sagði...

híhí, skemmtilegt blogg hérna hjá þér :D - en váháhá! djö hlýtur þú að vera komin í MASSSSSÍVT form kona! ég þarf að fara að fá einhver ráð frá þér held ég bara (og kannski smá orku í leiðinni;)! :D

mér finnst þú líka óendanlega kúl að ætla að fara í berlínarmaraþonið með Valdísi:D ég vissi ekki einu sinni að það væri til berlínarmaraþon :D - pældu í því að ég bjó hjá fólki í usa sem hljóp 20-30 km nokkrum sinnum í viku án þess að blása úr nös og var alltaf í maraþonum en samt kemst ég ekki lengra en svona km og þá þarf ég að pása hahaha :D ! snilldin ein!

knús á þig sæta :D

Saló sagði...

Sæta sæta... gaman að heyra í þér!!

Þú verður að fara að koma með okkur að hlaupa í sumar! Verður gaman að hafa allan jump fit hópinn saman!! :)

Ég er að reyna að koma mér af stað aftur... hlýt að komast í svaka form í sumar þegar maður verður bæði að sippa og hlupa... úff!! ;)

Hehe... knús sæta.. vertu í bandi við okkur!!

Nafnlaus sagði...

Hvað segiru um línuskautahlaupið

Saló sagði...

Bwahaha.... í berlín þá? Einmitt... sé það gerast!! Mér er orðið illt í fótunum eftir tíu mínútur... ég held ég fari helmingi hraðar á tveimur jafnfljótum...

Við skulum alveg hafa það á hreinu að ég henti mér út í gras og rúllaði marga metra þar sem ég náði ekki að grípa neina ljósastaura á brunandi ferð niður brekku í fossvoginum síðasta sumar...

Ég þarf klárlega að fara að æfa mig aftur... en hvenær það verður veit nú enginn... fljótlega!! Það stefnir allt í að ég þurfi að finna mér annað að gera kl 9 á laugardagsmorgnum ef þú skilur mig...

Hjördís sagði...

shit... ég er hætt að skoða bloggið þitt þangað til ég nenni að drattast almennilega af stað aftur!
þarf að setja mér e-ð fallegt markmið!
Ég er bara svo mikil félagstípa mig vantar e-ð svona hóóóóópskemmtilegt you know!

Saló sagði...

Hehehe... hvaða hvaða... kemuru ekki bara með að sippa og hlaupa?? ;)
Hlakka til að sjá þig á laugardaginn í brjáluðu stuði... !!

Nafnlaus sagði...

hey sæta - líst þér ekki vel á það að fara að blogga svona kannski 2x á dag næstu 3 vikurnar ;) þegar maður er að mygla í prófalestri þá fer maður bloggrúntinn svona tjah 5x á dag minnst hahahahah :D (sad I know...)

Nafnlaus sagði...

Hey, tilviljun...ég er að fara að taka þátt í þessu maraþoni líka...
Ég sé þig þegar ég tek fram úr þér beibí ;D
P.s. ég hlakka næu fyrst og fremast til þess að fá þig til mín á Ítalíu :D

Unknown sagði...

Vá hvað þetta verður flott hjá þér og skemmtilegt :D þú ert svo dugleg og alveg nett crazy en it's gonna be sooo worth it ;) Gangi þér sem allra allra best og njóttu fab Berlín ;)