miðvikudagur, maí 21, 2008

Ég get allt!!! :o)

There comes a time in life... þar sem maður gerir upp við sjálfan sig!!

Og það er svo góð tilfinning...

Þegar ég kom aftur í vinnuna eftir að hafa tekið vel á því í ræktinni í hádeginu var ég full af orku og jákvæðni... mér fannst ég geta allt og ég sá markmiðin mín eitthvað svo skýrt fyrir mér!! Ég er búin að bíða eftir þessu augnabliki í langan tíma... ég er ekki bara að segja... ég er að gera!!!

Sumarið og næsti vetur eru full af spennandi tækifærum og nýjungum og ég segi það satt að ég hlakka til að vakna á hverjum einasta morgni!! Það er svo margt í deiglunni... hausinn minn er alveg á milljón! En þannig virka ég best..

Auðvitað verðum við að þekkja vonbrigði og sorg til þess að kunna að njóta hamingju og gleði - en við megum heldur ekki gleyma því að lífið er of stutt til að staldra við í einhverju volæði og sjálfsvorkunn...

ég held því fram að hlutirnir gerist af því að þeim er ætlað að gerast... allt fer í reynslubankann og styrkir okkur og herðir...

Var þetta ekki bara ágætis ræða??? ;)

BBQ og keilumót á föstudag... við Empora skvísur stefnum að sjálfsögðu að því að rústa strákunum í keilu... þó að prímadonnan ég hafi smá áhyggjur af fínu nöglunum... (við fórum nefnilega að æfa um daginn og þá fauk ein af mér... og þar sem ég er að fara til Ítalíu á laugardaginn er það bara ekki alveg í boði...) - treysti eiginlega á Núsa vin minn sem er Íslandsmeistari í keilu til að finna út úr því.. ;) En já það má sem sagt búast við því að ég fari beint úr bænum í ræktina og þaðan upp í vél...

Farin á æfingu...
Later..

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er svo margt í þessari færslu sem ég get sagt "sammála" við!

Þetta er æðisleg tilfinning!

p.s. mér heyrist þú verða að sjá um okkur Hjördísi í júlí en viltu samt ekki drepa okkur lifandi takk!

Væri gaman að taka hitting fljótlega.

kv,
Heiðdís

Saló sagði...

Já, þetta er svo gott...

hehehe... ég sé um ykkur, ekki spurning!! Líst vel á það! :D

Vil endilega taka hitting sem allra fyrst!! Nefndu dag og ég er game :) Gerum eitthvað skemmtilegt... málum bæinn rauðan!!

Knús :*

Nafnlaus sagði...

Já fínasta ræða er svo ánægð með þig skvísa... svona á að gera þetta.. =O)

Saló sagði...

:) geggjað sátt pía... er að segja þér það!!

Þú ert bestust!! :*