þriðjudagur, maí 13, 2008

In the Mist

Ég tók hörkuæfingu með Svölunni minni seinnipartinn... fórum fyrst að lyfta í Laugum og svo dró ég hana með mér upp í Sporthús þar sem ég kenndi tvöfaldan Jump Fit tíma fyrir Rakel... i-podarnir okkar beggja eru stútfullir af hip hop tónlist og við vorum eiginlega komnar í svaka djammfíling þarna undir lokin... og helgin nú þegar ráðin!! ;)

Á föstudaginn er er opnun á sýningu hjá kærasta systur minnar sem er franskur ljósmyndari í Þjóðminjasafninu... Sýningin hans kallast In the Mist og er hluti af Listahátíðinni í Reykjavík. Þaðan heldur partýið áfram og ef ég þekki okkur rétt mun það enda á dansgólfinu á Vegamótum...

Átti einmitt doldið skemmtilegt samtal við vin minn í dag...

U says:
hæ hæ...takk fyrir síðast
~ *Saló* ~ says:
hæ! sömuleiðis
U says:
félagi minn sem var með mér á sunnudaginn hafði orð á því að besta væbið á staðnum kæmi frá þér (ATH! við erum að tala um Vegó ef það var ekki clear ;)
U says:
:)brilliant punktur
~ *Saló* ~ says:
hehehe snilld!!
~ *Saló* ~ says:
ég skemmti mér alltaf svo vel...

Gott að vita að ég er ekki lengur eins og blikkandi rautt viðvörunarljós hehe.... ;)

15 ummæli:

Nafnlaus sagði...

væri til í að kynnast þessum vini þínum aðeins ;) hihi.. you know what i'm talking about hon..

Saló sagði...

Hehehe... ég hélt að þú þekktir þennan nú þegar ;)

Nafnlaus sagði...

hahahhaa... vá þið eruð mega lélegar að tala í kringum hlutina.. haha.. fáið alveg verðlaunapeninga báðar tvær... úfff já maður kemst stundum bara í stuð þegar þú ert í stuði... það er smitandi.. híhí

Nafnlaus sagði...

hahaha.. :oP

Saló sagði...

Hahaha... einmitt.. aldrei verið góð í þessum málum! ;) Hvar er Gummi þegar mig vantar ísbíltúr með ykkur????

Gott að vita að ég er með smitandi orku... újee... þá er sko eins gott að þið séuð ready fyrir helgina því að ég finn hvernig orkan magnast upp... ég verð on fire á dansgólfinu!!! ;)

Nafnlaus sagði...

ég er komin með hellaða strengi framan á sköflungnum! hvað er það ? salóme!

Saló sagði...

bwahahaha... það eru sippustrengir! og svo við höfum það á hreinu þá fá bara alvöru sipparar svoleiðis... ;)

Nafnlaus sagði...

Stelpur... ég get aldrei lesið út úr neinu...

ennnnnn..... ég les út úr þessu.

Þið eruð mjög mjög lélegar að tala í kringum hlutina

Saló sagði...

Hún byrjaði....

Nafnlaus sagði...

heyhey! enda væriru frekar dumb ef þú skildir þetta ekki þar sem þú varst eiginlega á staðnum :oP hahah..s

Nafnlaus sagði...

Já vá mætti halda að þið væruð svona 11 ára miðað við hvernig farið er í kringum hlutina hér... haha.. já.. tapið báðar bara..haha.. úff .. hvar er Gumminn... ég vil líka ræða við hann...On fire.. spurning um að hita upp með fimmtudags kíki á lífið ?

Nafnlaus sagði...

eigum við að ræða það eitthvað ?! ég er til !!

Saló sagði...

Það er on... ;)

Nafnlaus sagði...

Ég var að koma af Vegó.. tékka stemminguna.. við erum að fara að trylla það í kvöld.. það er sko klárt .. híhí

Nafnlaus sagði...

Hvað segiði, var einhver að leita af mér? Hvað þurfiði að ræða um svona merkilegt ?